Laugardaginn 25. janúar býður Bókasafnið í Hveragerði, í samstarfi við félagið Vigdísi—vini gæludýra á Íslandi, börnum að lesa fyrir hund sem er sérstaklega þjálfaður til að hlusta á upplestur. Lestrarstundirnar eru hugsaðar fyrir læs börn á grunnskólaaldri og miða að því að auka öryggi barna við lestur.
Athugið að nauðsynlegt er að bóka tíma fyrir fram. Það má gera með því að senda skilaboð í á Facebook, senda tölvupóst í netfangið bokasafn@hveragerdi.is eða koma við í afgreiðslu bókasafnsins.
Við vekjum athygli á því að lestrarstundirnar eru ekki fyrir börn sem eru hrædd við hunda.
Sunnumörk 2 | 810 Hveragerði Sími: 483 4531 Netfang: bokasafn@hveragerdi.is |
Afgreiðslutími: |
Bókasafnið í Hveragerði | Sunnumörk 2, 810 Hveragerði | Sími: 483 4531 | bokasafn@hveragerdi.is