Leshringur

Næsti fundur leshrings bókasafnsins verður haldinn fimmtudaginn 30. nóvember og þá verður fjallað um bókina Veröld sem var eftir Stefan Zweig. Það verður heitt á könnunni að vanda og öll velkomin. Eintök af bókinni má nálgast í afgreiðslu bókasafnsins. 

Um bókina:

Veröld sem var er einhver áhrifamesta sjálfsævisaga rithöfundar sem út hefur komið. Höfundurinn fléttar lífshlaup sitt saman við umrótatíma í Evrópu á síðustu öld svo úr verður einstakur aldarspegill sem felur í sér mikilvæg varnaðarorð til komandi kynslóða.

Austurríski gyðingurinn Stefan Zweig hóf ritun sögunnar árið 1934 þegar uppgangur nasista var í algleymingi og útþensla Þriðja ríkisins ásamt víðtækum gyðingaofsóknum blöstu við öllum sem höfðu augun opin. Zweig flýði heimaland sitt og hélt til Englands og síðar Brasilíu. Þar lauk hann verkinu í febrúar 1942 og póstlagði handritið til útgefanda. Daginn eftir styttu Zweig-hjónin sér aldur, södd lífdaga í stríðshrjáðum heimi.

Sagan er listrænt uppgjör höfundarins við samtímann og lýsir á einstakan hátt hvernig kynslóð hans glutraði niður „gullöld öryggisins“ í skiptum fyrir veröld haturs og villimennsku. Halldór J. Jónsson og Ingólfur Pálmason þýddu. Bókin kom fyrst út á íslensku árið 1958.