Uppskeruhátíð sumarlesturs

Sumarlestri bókasafnsins lauk með uppskeruhátíð sem haldin var fimmtudaginn 12. ágúst. Þá mættu vaskir lestrarhestar og hlustuðu á upplestur Arndísar Þórarinsdóttur sem hefur m.a. skrifað bækurnar Bál tímans, Nærbuxnaverksmiðjan og Blokkin á heimsenda.

Arndís hjálpaði okkur líka að draga út nokkra vinningshafa og boðið var upp á veitingar á meðan Blaðrarinn útbjó ýmiskonar blöðrufígúrur eftir pöntun. Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna og þátttökuna í sumarlestrinum 2021!