Mæður og ljósmæður

Þrjár kynslóðir kvenna standa að sýning um tengsl mæðra og afkvæma sem stendur yfir á Bókasafninu í Hveragerði frá 8. apríl til 8. maí 2026. 

Ingibjörg Sigurðardóttir er grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands og listgreinakennari við Grunnskólann í Hveragerði. Ingibjörg myndskreytti Brjóstagjafabókina sem gefin var út 2024 og sýnir upprunalegu myndskreytingarnar úr bókinni.

Hulda Sigurlína Þórðardóttir er ljósmóðir, brjóstagjafaráðgjafi, áhugaljósmyndari og einn af höfundum Brjóstagjafabókarinnar. Hún  sýnir ljósmyndir af höndum ljósmæðra.

Ronja Vignisdóttir er nemandi við Grunnskólann í Hveragerði. Hún vinnur með blandaða tækni á vatnslitapappír og fjallar í verkum sínum um tengsl mæðra og afkvæma.

Sýningin heiðrar móðurina sem vefur afkvæmi sitt hlýju og öryggi. Hún túlkar umhyggjuna fyrir afkvæminu á litríkan og einlægan hátt. Samtals eru rúmlega þrjátíu myndir á sýningunni.