Ljósmyndahópurinn HVER sýnir á Bókasafninu í Hveragerði í nóvembermánuði.
Sýningin heitir: FYRR og NÚ -Hveragerði
Sýningaropnun verður föstudaginn kl. 15.00 í bókasafninu og boðið verður upp á kaffi og pönnsur. Verið öll hjartanlega velkomin.
Þetta er hvorki söguleg né menningarleg sýning- aðalmarkmið sýningarinnar er: Mín túlkun á tímanum fyrr og nú. Meginmarkmið hópsins er að hafa gaman saman.Hópinn skipa 15 félagar og völdu tíu þeirra að taka þátt í sýningunni. Hver og einn valdi sér eina gamla mynd frá Hveragerði eða nágrenni frá árunum í kringum 1930-1970 og tók síðan mynd út frá svipuðu sjónarhorni. Félagar í ljósmyndahópnum BLIK á Selfossi aðstoðuðu við vinnslu myndanna og prentun.
Sýningin er opin á sama tíma og bókasafnið; mánudaga, kl. 11-18:30. þriðjudaga-föstudaga, kl. 13-18:30 og laugardaga, kl. 11-14.
Sunnumörk 2 | 810 Hveragerði Sími: 483 4531 Netfang: bokasafn@hveragerdi.is |
Afgreiðslutími: |
Bókasafnið í Hveragerði | Sunnumörk 2, 810 Hveragerði | Sími: 483 4531 | bokasafn@hveragerdi.is