Sett hefur verið upp sýning á verkum Jónu Berg Andrésdóttur á Bókasafninu í Hveragerði. Jóna Berg fæddist í Reykjavík og ólst upp við það að bækur og myndlist væru sjálfsagður hluti af lífinu enda málaði faðir hennar og vatnslitaði þegar minnsta tóm gafst til frá vinnusamri tilveru. Á sumrin var hún hjá ömmu sinni í Vestmannaeyjum, í einu húsanna á Kirkjubæ, sem fóru fyrst
undir hraun í Heimaeyjargosinu 1973.
Jóna flutti til Eyja eftir að hafa lokið námi í Verzlunarskóla Íslands. Hún fór að sinna
postulínsmálun 1975 og sótti nokkur námskeið sem voru haldin í Eyjum. Blýantur og litur hafa
líka alltaf verið innan seilingar frá því hún var barn. Hún fór sjö ára á myndlistanámskeið
í Handíða- og myndlistaskóla Reykjavíkur og fjórtán ára á teikninámskeið í sama skóla þar sem
teiknað var eftir styttum, lifandi módelum og fleiri fyrirmyndum.
Eftir að Jóna flutti frá Eyjum 2001 hefur hún sótt nokkur námskeið í olíumálun, meðal annars
í MÍMI hjá Hörpu Björnsdóttur listakonu og vatnslitanámskeið hjá Derek Mundell í Myndlistaskóla
Kópavogs 2016 og 2017. Jóna er nýr félagi í Myndlistafélagi Árnessýslu.
Jóna sækir hugmyndir sínar í land og náttúru sem hún þekkir vel eftir búsetu í Eyjum og margar
ferðir um landið en uppsprettan kemur líka úr dýraríkinu og mannlífinu, ekki síst
úr hennar nánasta ranni.
Sýningin mun standa út júní og er opin á sama tíma og bókasafnið,
mánudaga kl. 11-18:30, þriðjudaga-föstudaga kl. 13-18:30 og laugardaga kl. 11-14.
Sunnumörk 2 | 810 Hveragerði Sími: 483 4531 Netfang: bokasafn@hveragerdi.is |
Afgreiðslutími: |
Bókasafnið í Hveragerði | Sunnumörk 2, 810 Hveragerði | Sími: 483 4531 | bokasafn@hveragerdi.is