Hverir og jarðmyndanir

Myndlistarkonan Ester Jóhannesdóttir sýnir ljósmyndir og málverk sem hún vann á meðan dvöl hennar í listamannahúsinu Varmahlíð stóð. Ester er með Mastergráðu í myndlist frá University of Leeds á Englandi og hefur haldið fjölda sýninga.

Sýning hennar á Bókasafninu í Hveragerði ber yfirskriftina Hverir og jarðmyndanir og er nokkurs konar rannsókn/náttúruskoðun á hverum og jarðmyndunum í nágrenni Hveragerðis. Sýningin stendur til og með 17. október og er opin á afsgreiðslutíma bókasafnsins.

Það sem gerir landslagið í nágrenni Hveragerðis sérstklega áhugavert er að þú getur bókstaflega séð jarðsöguna í landslaginu, hveri, gufuholur, sprungur, hraun og fjöll eru allt merki um að jörðin er að myndast þarna. 

Í túlkun minni á landslagi Hveragerðis og nágrenni tek ég myndir, safna jarðsýnum og mála eftir minni af ferðum mínum um svæðið. Margar spurningar vakna um tilurð svæðisins, hvaða steindir eru þarna?, hvernig komu þær til? 

Hvað er hver og hverauga? Tengist það skáldskaparguðinum Óðni?