Dagskrá Blómstrandi daga

Bæjarhátíðin Blómstrandi dagar verður haldin dagana 13. - 16. ágúst 2026 og það verður fjölbreytt dagskrá í boði um allan bæ!

Á bókasafninu verður opið frá kl. 12-18 fimmtudag og föstudag og frá kl. 11-16 laugardaginn 15. ágúst. Boðið verður upp á bókamarkað, plöntuskiptimarkað og föndur fyrir fjölskylduna. Á laugardeginum verður auk þess boðið upp á strumpaleit!

Bókamarkaður
Úrval af góðum bókum til sölu á frábæru verði. Ýmiskonar fræðibækur, ævisögur, skáldsögur, ljóðabækur, barnabækur, bækur á erlendum málum. Komið og gerið góð kaup.

Plöntuskiptimarkaður
Öllum er velkomið að skiptast á plöntum, afleggjurum, pottum o.þ.h. Það er ekki nauðsynlegt að koma með plöntur/afleggjara til að taka.

Föndur fyrir fjölskylduna
Í barnahorninu geta foreldrar og börn komið sér fyrir og átt notalega föndurstund.

Strumpaleit
Laugardaginn 15. ágúst kl. 12-17 verður boðið upp á strumpaleit. Glaðningur handa þeim sem finna alla strumpana og lausnarorðið!