Breyttur afgreiðslutími í sumar

Breyttur afgreiðslutími verður á bókasafninu í sumar, frá 1. júní til 31. ágúst. Opið verður alla virka daga frá 12-18 og lokað um helgar. Skilakassinn verður á sínum stað við inngang bókasafnsins fyrir þá sem þurfa að skila gögnum utan afgreiðslutíma.