Lesið fyrir hund

Laugardaginn 15. apríl býður Bókasafnið í Hveragerði, í samstarfi við félagið Vigdísi—vini gæludýra á Íslandi, börnum að lesa fyrir hunda sem eru þjálfaðir til að hlusta á upplestur. Lestrarstundirnar eru hugsaðar fyrir læs börn á grunnskólaaldri og miða að því að auka öryggi barna við lestur. 

Athugið að nauðsynlegt er að bóka tíma fyrir fram. Það má gera með því að senda skilaboð í á Facebook, senda tölvupóst í netfangið eddahrund@hveragerdi.is eða koma við í afgreiðslu bókasafnsins.

Við vekjum athygli á því að lestrarstundirnar eru ekki fyrir börn sem eru hrædd við hunda.