Leshringur

Síðasti fundur leshringsins fyrir sumarfrí verður fimmtudaginn 30. maí kl. 17. Þá verður fjallað um skáldsöguna Inngangur að efnafræði eftir Bonnie Garmus. Það verður heitt á könnunni að vanda og öll velkomin. Eintök af bókinni má nálgast í afgreiðslu bókasafnsins. 

Um bókina:

Efnafræðingurinn Elizabeth Zott er svo sannarlega engin venjuleg kona og þegar hún ræður sig í starf á rannsóknarstofnun í Kaliforníu á sjöunda áratugnum þarf hún að takast á við alls kyns fordóma og berjast með kjafti og klóm fyrir viðurkenningu í karlaheimi. Hún ávinnur sér þó aðdáun og virðingu eins manns, ungs snillings sem er talinn líklegur til að vinna Nóbelsverðlaun – og ástin sameinar þau gegn öllum.

En ekki fer allt eins og ætlað er og fáeinum árum seinna er Elizabeth einstæð móðir sem stýrir vinsælasta matarsjónvarpsþætti Bandaríkjanna – þvert gegn vilja sínum – og gerir það á sinn einstaka hátt. Og það kemur við kaunin á ýmsum því að Elizabeth er ekki bara að kenna konum að elda samkvæmt lögmálum efnafræðinnar, hún hvetur þær til að breyta lífi sínu.