Leshringur

Næsti fundur leshrings bókasafnsins verður haldinn fimmtudaginn 28. september og þá verður fjallað um bókina Útlagamorðin eftir Ármann Jakobsson. Það verður heitt á könnunni að vanda og öll velkomin. Eintök af bókinni má nálgast í afgreiðslu bókasafnsins. 

Um bókina:

Ungur maður, óþekktur, finnst látinn í húsagarði í litlum bæ úti á landi. Nýstofnuð morðrannsóknardeild lögreglunnar fer þegar á staðinn en er vandi á höndum.

Bærinn er sneisafullur af erlendum ferðamönnum og skemmtigarður nýopnaður, kattamorðingi gengur laus, tvær systur virðast ráða öllu sem máli skiptir – og ein úr lögregluliðinu á miður góðar minningar úr þessum smábæ.

Útlagamorðin er vönduð glæpasaga þar sem Ármann Jakobsson prófessor í miðaldabókmenntum sýnir á sér algjörlega nýja hlið. Hér skrifar hann ekki um víg í Íslendingasögum heldur glæpi í nútímanum í launfyndnum en hörkuspennandi reyfara.