Leshringur

Næsti fundur leshrings bókasafnsins verður fimmtudaginn 27. apríl kl. 17-18. Fjallað verður um bókina Kjörbúðarkonan eftir Sayaka Murata. Það verður heitt á könnunni að vanda og öll velkomin. Eintök af bókinni má nálgast í afgreiðslu bókasafnsins. 

Um bókina:
Þegar Keiko Furukura fær hlutastarf með námi í kjör búðinni Smile Mart finnur hún tilgang í lífinu. Þar skilur hún reglurnar – þær eru skráðar í hand bók búðarinnar – og á auðvelt með að falla inn í starfsmanna hópinn. En nú er hún orðin 36 ára gömul og fólki finnst tími til kominn að hún taki næstu skref: finni sér maka og merkilegra starf. Keiko tekur málin í sínar hendur með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. 

Heillandi perónusköpun og kómísk en djúp sýn á japanskan samtíma, á þrúgandi tilætlunarsemina, að vera og haga sér eins og „hinir“. Sayaka Murata er margverðlaunaður japanskur höfundur sem vann sjálf í 18 ár í kjörbúð. Kjörbúðarkonan hefur verið þýdd á 37 tungumál og fyrir hana hlaut Murata hin virtu Akutagawa-verðlaun. Þýðandi er Elísa Björg Þorsteinsdóttir.