Verið velkomin á bókasafnið laugardaginn 30. nóvember kl. 13. Elísabet Jökulsdóttir les úr nýnýútkominni bók sinni Límonaði frá Díafani.
Ella Stína er átta ára þegar hún fer út í heim með fjölskyldunni. Í Grikklandi er allt með öðrum brag en heima á Seltjarnarnesi; eðlur skjótast um veggi, mandarínur og ólífur vaxa á trjánum, geitur ganga um með bjöllur um hálsinn og örsmáu bænahúsin í hlíðinni hljóta að vera sérstaklega fyrir krakka. Ella Stína skottast um allt með yngri bræður sína en foreldrarnir eru yfirleitt uppteknir við skriftir. Löngu seinna kemur Ella Stína aftur til Grikklands, hvað er þá orðið af sólbökuðu fjölskyldunni sem eitt sinn var?
Elísabet Jökulsdóttir hefur sent frá sér fjölda bóka en sló nú síðast í gegn með Saknaðarilmi og Aprílsólar
Boðið verður upp á kaffi og piparkökur.
Sunnumörk 2 | 810 Hveragerði Sími: 483 4531 Netfang: bokasafn@hveragerdi.is |
Afgreiðslutími: |
Bókasafnið í Hveragerði | Sunnumörk 2, 810 Hveragerði | Sími: 483 4531 | bokasafn@hveragerdi.is