Bókaklúbburinn

Næsti fundur bókaklúbbsins verður fimmtudaginn 30. apríl kl. 17

Þá ætlum við að fjalla um bókina Blinda eftir José Saramago.

Það verður heitt á könnunni að vanda og öll velkomin. Eintök af bókinni má nálgast í afgreiðslu bókasafnsins.

Um bókina:

Maður nokkur er skyndilega sleginn hvítri blindu undir stýri á bíl sínum. Hinum blindu fjölgar síðan hratt og skýringar finnast engar. Smám saman tekur þjóðfélagið á sig breytta mynd, sem kallar á breytta hegðun. José Saramago hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1998. Blinda er eina skáldverk hans sem þýtt hefur verið á íslensku.