Berlínarbjarmar
höfundur: Valur Gunnarsson
Sagnfræðingurinn Valur Gunnarsson kryfur hér sögu hinnar margslungnu Berlínar og nágrennis frá mörgum hliðum allt frá tímum keisara, nasista, heimsstyrjalda og svo aðskilnaðar til falls múrsins. Við sögu koma meðal annarra hin þýska langamma höfundar, goðsögnin David Bowie og ýmsir lykilleikmenn í sögu Evrópu.
Framtíðin tilheyrir Berlín. Það hefur hún lengi gert, og þó lætur fortíðin finna fyrir sér við hvert fótmál. Í rúm 40 ár var Berlín ekki ein borg, heldur tvær. Mörgum þótti spennandi að heimsækja Austur-Berlín, samhliða veröld þar sem allt sneri einhvern veginn á haus. En hinn helmingur borgarinnar var ekki síður einstakur. Vestur-Berlín varð anarkistakommúna reist á prússneskum grunni, allt var leyfilegt en þó vel skipulagt. Lítil vin mitt á milli áhrifasvæða stórvelda, umkringd gaddavír en þó frjáls á sinn einstaka hátt.
Og svo féll múrinn.
hliða veröld þar sem allt sneri einhvern veginn á haus. En hinn helmingur borgarinnar var ekki síður einstakur. Vestur-Berlín varð anarkistakommúna reist á prússneskum grunni, allt var leyfilegt en þó vel skipulagt. Lítil vin mitt á milli áhrifasvæða stórvelda, umkringd gaddavír en þó frjáls á sinn einstaka hátt.
Og svo féll múrinn.