Aldrei aldrei
höfundur: Colleen Hoover
Grípandi saga sem fyrst kom út í þrem hlutum en er hér sameinuð í eina bók.
Charlize Wynwood og Silas Nash hafa verið bestu vinir síðan þau lærðu að ganga og ástfangin síðan þau voru fjórtán. En frá og með deginum í dag þekkja þau ekki hvort annað. Fyrsti kossinn, fyrsta rifrildið, augnablikið sem þau urðu ástfangin...allar þessar minningar eru horfnar. Charlie og Silas þurfa í sameiningu að fina út úr því hvað kom fyrir þau og hvers vegna. Því meira sem þau grafa upp því fleiri spurningar vakna:
Hvað kom upp á milli foreldra þeirra? Hvað veit spákonan um málið? Hvers vegna í ósköpunum höfðu þau eiginlega verið par? Það er ömurlegt að gleyma en það gæti verið verra að muna.
Sunnumörk 2 | 810 Hveragerði Sími: 483 4531 Netfang: bokasafn@hveragerdi.is |
Afgreiðslutími: |
Bókasafnið í Hveragerði | Sunnumörk 2, 810 Hveragerði | Sími: 483 4531 | bokasafn@hveragerdi.is