Nýtt efni

Kápa: Vestanvindurinn

Vestanvindurinn

höfundur: Alexandria Warwick

Höfundur Norðanvindsins færir lesendum nú myrka og seiðandi sögu um forboðnar ástir, innblásna af grísku goðsögunni um Heró og Leander og skoska sagnaljóðinu Tam Lin eftir Robert Burns. Nunnuefnið Bríet hefur tileinkað Þyrniárklaustri líf sitt. Hún vinnur þar sem járnsmiður og á hverju kvöldi les hún Textann til þess að undirbúa sig undir nunnuvígsluna. Í tuttugu og eitt ár hefur hún verið á þessari jörðu en aldrei snert karlmann. Eitthvað sem á líka aldrei eftir að gerast.
Þegar Bríet kemur að dularfullum karlmanni í skóginum sem er alvarlega slasaður, getur hún ekki annað en komið honum til hjálpar. Kynni þeirra leiða hana síðan í ríki Undirheims, þar sem daunn rotnunar liggur yfir öllu á meðan huldufólkið dansar og pískrar. Þar kemst hún að því að maðurinn sem hún aðstoðaði er enginn annar en guðinn Sefíros, eða Vestanvindurinn, sjálfur vorboðinn.
Í Undirheimi eru flestir viðsjárverðir og ekki síst Sefíros. Hann er hættulega sjarmerandi og þar að auki hefur enginn maður haft svona áhrif á Bríet. Ferð hennar um óhugnanlega árbakka og hella Undirheims er afar hættuleg. Því þarna rekast á trú hennar og hjarta og þarna leggur hún ekki einungis framtíð sína undir ... heldur lífið sjálft.
alexandriaNunnuefnið Bríet hefur tileinkað Þyrniárklaustri líf sitt. Hún vinnur þar sem járnsmiður og á hverju kvöldi les hún Textann til þess að undirbúa sig undir nunnuvígsluna. Í tuttugu og eitt ár hefur hún verið á þessari jörðu en aldrei snert karlmann. Eitthvað sem á líka aldrei eftir að gerast.