Í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar verður haldin sögustund á bókasafninu fimmtudaginn 16. apríl kl. 18-19.
Linda Blöndal bókavörður mun stýra líflegum umræðum. Pjetur Hafstein Lárusson les upp úr bók sinni Hveragerðisskáldin.
Langömmusonur Ingunnar Bjarnadóttur tónskálds leyfir gestum að heyra brot af verkum hennar og tónlistarparið Pétur Nói Stefánsson og Guðný Alma Haraldsdóttir munu flytja lög Ingunnar.
Boðið verður upp á nýbakað hverabrauð og heitt á könnunni, bæði te og kaffi.
|
Sunnumörk 2 | 810 Hveragerði Sími: 483 4531 Netfang: bokasafn@hveragerdi.is |
Afgreiðslutími: mánudaga-föstudaga 12-18 |
Bókasafnið í Hveragerði | Sunnumörk 2, 810 Hveragerði | Sími: 483 4531 | bokasafn@hveragerdi.is