Bókaklúbburinn

Næsti fundur bókaklúbbsins verður fimmtudaginn 26. febrúar kl. 17

Þá ætlum við að fjalla um bókina Eftirköstin eftir Rhidian Brook.

Það verður heitt á könnunni að vanda og öll velkomin. Eintök af bókinni má nálgast í afgreiðslu bókasafnsins.

Um bókina:

Hamborg 1946. Þúsundir eru á vergangi. Breska hernámsliðsins bíður nær óyfirstíganlegt verk: að reisa borgina úr rústum. Edmund og Rachael móðir hans eru komin yfir hafið til að vera loksins nálægt fjölskylduföðurnum Lewis, yfirmanni í hernum. Rachael er miður sín eftir að eldri sonur þeirra fórst í loftárás og hatar Þjóðverja skefjalaust. Fjölskyldan fær til umráða glæsihýsi við Saxelfi en Lewis leyfir eigendum hússins, þýskum ekkli og unglingsdóttur hans, að búa þar áfram. Fjandskapur og sorg setur mark á sambúðina og þvingað andrúmsloftið knýr fram sterkar tilfinningar. Við þessar einkennilegu aðstæður þurfa allir að lokum að horfast í augu við sjálfa sig.

Eftirköstin er áhrifamikil saga um afleiðingar hamfara; um brostnar vonir, skaddað fólk – og um mátt fyrirgefningarinnar.

Innblástur að sögunni segir Brook hafa fengið frá afa sínum sem einmitt var yfirmaður í breska hernum, sá um uppbyggingu Hamborgar eftir stríðið og flutti ásamt fjölskyldu sinni inn til þýskrar fjölskyldu á meðan verkefninu stóð.

Rhidian Brook (f. 1964) er breskur verðlaunahöfundur sem hefur samið efni fyrir dagblöð, útvarp, sjónvarp og kvikmyndir auk bókaskrifa. Eftirköstin er þriðja skáldsaga hans og hefur verið gefin út á fjölda tungumála.

Guðrún Eva Mínervudóttir þýddi.